Þorbjörn aðalfundir
Þorbjörn aðalfundir

Aðsent

Ríflega 200 fleiri leikskólapláss á kjörtímabilinu 
Föstudagur 24. apríl 2026 kl. 09:37

Ríflega 200 fleiri leikskólapláss á kjörtímabilinu 

Íbúar Reykjanesbæjar voru um 24.500 í upphafi ársins 2026 samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Fjölgun íbúa hefur numið tæplega 18% á yfirstandandi kjörtímabili frá ársbyrjun 2022. Frá aldamótum hefur íbúafjöldi Reykjanesbæjar ríflega tvöfaldast. Það er nauðsynlegt að ábyrg stjórn sveitarfélagsins haldi í við hraða fjölgun íbúa varðandi innviði og þjónustu. 

Ég hef lært mikið á mínu fyrsta kjörtímabili sem varaformaður menntaráðs. Þar hafa verkefnin tengst skólum sveitarfélagsins, nemendum, starfsfólki og íbúum. Ég hef einnig setið bæjarstjórnarfundi sem varabæjarfulltrúi Framsóknar undanfarin fjögur ár. 

Á kjörtímabilinu hefur verið unnið að fjórum mikilvægum framkvæmdum við leikskóla ReykjanesbæjarLeikskólinn Holt var stækkaður og nýir leikskólar voru opnaðir í húsnæði  Gamla barnaskólans í Keflavík, við Drekadal í Innri-Njarðvík og Asparlaut er nýr leikskóli í Hlíðarhverfi. 
Leikskólinn Holt var stækkaður um tvær deildir árið 2022. Fjórar deildir urðu að sex og fjölgun leikskólaplássa nam 36, fór úr 70 í 106. Árið 2024 var Tjarnarlundur opnaður, ný leikskóladeild Tjarnarsels, í sögufrægu húsnæði Gamla barnaskólans við Skólaveg 1 í KeflavíkÞar bættust við 25 pláss. 

Þá voru tveir nýir leikskólar teknir í notkun í Reykjanesbæ árin 2024 og 2025. Starfsemi Drekadals hófst í ágúst 2024 með opnun tveggja deilda í tímabundinni aðstöðu í Keili á Ásbrú. Tafir urðu á opnun nýja leikskólans í Dalshverfi III í Innri-Njarðvík þar sem Reykjanesbær þurfti að taka við framkvæmdum vegna vanefnda verktaka. Fyrsti áfangi leikskólans í Drekadal var opnun þriggja deilda í Innri-Njarðvík í nóvember 2025. Leikskólinn var formlega vígður í febrúar 2026. Stefnt er að því að allar sex deildir verði opnaðar næstkomandi haust, þá verður heildarfjöldi plássa þar 120. 

i leikskólinn Asparlaut var opnaður í Hlíðarhverfi í Reykjanesbæ í mars 2025Líkt og í Drekadal er þar einnig rými fyrir allt að 120 börn á sex deildum. Asparlaut leysir af hólmi leikskólann Garðasel sem var vígður í ágúst 1974. Garðasel var fjögurra deilda leikskóli með pláss fyrir um 85 börn. Með tilkomu Asparlautar fjölgar leikskólaplássum um 35 auk þess sem aðstaða fyrir börn og starfsfólk er mun betri en í Garðaseli en leikskólinn hefur verið vel nýttur í rúmlega hálfa öld. Mér þykir vænt um þá sögulegu tengingu að sænsk hjálparsamtök gáfu húsnæði Garðasels til Keflavíkur eftir eldgosið í heimabæ mínum Vestmannaeyjum árið 1973.  

Leikskólaplássum í Reykjanesbæ hefur fjölgað um 216 á kjörtímabilinu 2022-2026. Á næsta kjörtímabili verður haldið áfram að byggja upp í leikskólakerfinu. Markmið okkar í Framsókn er skýrt, við viljum að Reykjanesbær sé besti bærinn til að ala upp börn. 

Sighvatur Jónsson 
Höfundur er varaformaður menntaráðs Reykjanesbæjar og skipar 6. sæti á lista Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí næstkomandi. 

Aðalbros
Aðalbros
Miðbæjareignir
Miðbæjareignir